Fundargerð - 31. ágúst 2004
31.08.2004
Þriðjudaginn 31. ágúst 2004, kom framkvæmdanefnd Þelamerkurskóla saman til fundar í matsal skólans. Mættir voru: Anna Lilja Sigurðardóttir, Ármann Búason, Helgi Steinsson, Hjördís Sigursteinsdóttir og Unnar Eiríksson. Auk þess kom bókhaldari skólans Helga Erlingsdóttir vegna fyrstu fjögurra dagskrárliða. Í upphafi fundar baðst Ármann Búason undan því að rita fundargerðir í vetur...