Friðlýst svæði í Hörgársveit
Fólkvangur í Hrauni, Öxnadal
Stærstur hluti jarðarinnar Hrauns í Öxnadal var friðlýstur sem fólkvangur af Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra, þann 10. maí 2007, skv. lögum um náttúruvernd nr. 44/1999.
Fólkvangurinn í Hrauni er eina svæðið í Hörgársveit sem er friðlýst á grundvelli laga um náttúruvernd.
Markmiðið með friðlýsingu hluta jarðarinnar Hrauns í Öxnadal er að vernda svæðið til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu. Verndargildi svæðisins byggir á því að landslag og náttúrufar, sérstaklega jarðmyndanir, eru mjög fjölbreytt og eru þar m.a. mikilvægar minjar um horfna búskaparhætti.
Markmið friðlýsingarinnar er jafnframt að auðvelda umgengni og kynni af menningarminjum og bókmenntaarfi þjóðarinnar, en þar fæddist skáldið og náttúrufræðingurinn Jónas Hallgrímsson.
Stærð fólkvangsins er 2286,3 ha.
Önnur svæði í Hörgársveit sem njóta verndar frá náttúrufarslegu sjónarmiði eru:
- Vatnsverndarsvæði
- Stór hluti Hörgársveitar er skilgreindur sem vatnsverndarsvæði.
- Nánari upplýsingar síðar.
Náttúruminjaskrá
- Nánar síðar.