Sumarstarf
04.03.2025
Við óskum eftir starfsmanni í sumarafleysingar í Heilsuleikskólann Álfastein í Hörgársveit frá maí til enda ágúst 2025. Leikskólinn lokar frá 14. júlí til 12. ágúst.
Leikskólinn er 4ja deilda skóli fyrir börn á aldrinum 1 til 6 ára. Mikil áhersla er lögð á gleði og vellíðan barna, næringu, hreyfingu, listsköpun og frjálsan leik. Einnig er unnið með jákvæðan aga (Positive Discipline) og er skólinn á Grænni grein. Við leitum eftir fólki sem hefur gleði og ánægju af að starfa með börnum. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
• Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
• Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
• Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Reynsla af starfi í leikskóla eða með börnum æskileg
• Jákvæðni, félagslyndi og góð færni í samskiptum
• Sveigjanleiki og tilbúinn að ganga í ýmis störf
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Mjög góð færni í íslensku
• Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 16. mars nk. og skal umsóknum skilað, ásamt ferilskrá á alfasteinn@horgarsveit.is
Upplýsingar gefur Hugrún Hermannsdóttir skólastjóri í síma 460-1760 eða á netfangið alfasteinn@horgarsveit.is