Hraun í Öxnadal, Hörgársveit – kynning skipulagslýsingar vegna deiliskipulags
Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundi sínum þann 14. nóvember 2024 að vísa skipulagslýsingu vegna nýs deiliskipulags fyrir Hraun í Öxnadal í kynningarferli samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið nær yfir um 1,15 ha svæði í landi Hrauns í Öxnadal. Það afmarkast af Öxnadalsá í austri og bæjarhólnum og hans nánasta umhverfi að öðru leyti.
Verkefnið snýr að uppbyggingaráformum, þar sem markmiðið er að heiðra minningu þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar með gerð gestastofu á svæðinu ásamt aðstöðu og bæta aðkomu og bílastæði á skipulagssvæðinu.
Skipulagslýsing vegna verkefnisins liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 25. nóvember til og með 9. desember 2024, auk þess að vera aðgengileg á heimasíðu Hörgársveitar, (horgarsveit.is) og á skipulagsgáttinni undir málsnr. 1386/2024. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til 9. desember 2024 til að gera athugasemdir við skipulagslýsinguna inni á vef skipulagsgáttar (skipulagsgatt.is) með rafrænum skilríkjum.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar