Atvinna - Heilsuleikskólinn Álfasteinn

Heilsuleikskólinn Álfasteinn í Hörgársveit óskar eftir að ráða starfsfólk í leikskóla. Um er að ræða 30 – 100 % tímabundnar stöður með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Ráðið verður í störfin frá og með 15. ágúst nk. eða eftir samkomulagi.

Leikskólinn er 4ja deilda skóli fyrir börn á aldrinum 1 til 6 ára.

Einkunnarorð skólans eru “Með sól í hjarta”

Mikil áhersla er lögð á gleði og vellíðan barna, næringu, hreyfingu, listsköpun og frjálsan leik. Einnig er unnið með jákvæðan aga (Positive Discipline) og er skólinn á Grænni grein.

Við leitum eftir fólki sem hefur gleði og ánægju af að starfa með börnum. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Vinnuumhverfi leikskólans er gott, nýtt húsnæði, góður starfsandi og áunnin stytting vinnuvikunnar er tekin í haustfríi, milli jóla og nýjárs og í dymbilviku, auk valkvæðra daga yfir árið. Allt starfsfólk Hörgársveitar fær árskort í Jónasarlaug á Þelamörk.

Nánari upplýsingar um starfið má sjá á heimasíðu leikskólans https://alfasteinnhorgarsveit.is/

Umsóknarfrestur er til 4. júlí nk. og skal umsóknum skilað, ásamt ferilskrá á alfasteinn@horgarsveit.is

Upplýsingar gefur Hugrún Hermannsdóttir skólastjóri í síma 460-1760 eða á netfangið alfasteinn@horgarsveit.is