Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 107

13.11.2024 08:30

Skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar 107. fundur

Fundargerð

Miðvikudaginn 13. nóvember 2024 kl. 08:30 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Agnar Þór Magnússon, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Bjarki Brynjólfsson og í skipulags- og umhverfisnefnd, Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.

  1. Vegagerðin – samtal um skipulagsmál (2411007)

Gunnar H Guðmundsson, Stefán Þór Pétursson og Rúna Ásmundsdóttir frá Vegagerðinni mættu til fundar við nefndina. Farið var yfir ýmis skipulagsmál er varða framkvæmdir í Hörgársveit á vegum Vegagerðarinnar.

  1. Hringtorg við Lónsveg – umræða um hugmyndir Vegagerðarinnar að breytingum (2408004)

Fyrir fundinum lá tillaga að breytingu á deiliskipulagi þéttbýlis Lónsbakka sem nær til sama svæðis og breyting sem samþykkt var í sveitarstjórn 08.05.2024 (breytingablað nr. 13). Samkvæmt þessari tillögu er fallið frá gerð undirganga norðan hringtorgs auk breytingar á útfærslu stíga, lóða og lagna. Deiliskipulagstillagan er unnin af Teikna, dags. 04.11.2024 (breytingablað nr. 15).

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi þéttbýlis Lónsbakka skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin er gerð í samráði við hagsmunaaðila og því er fallið frá grenndarkynningu sbr. ákvæði 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og er skipulagsfulltrúa falið að fullnusta deiliskipulagsbreytinguna.

  1. Norðurorka – umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir færslu á lögnum út fyrir væntanlegt hringtorg við Lónsveg

Norðurorka sækir um framkvæmdaleyfi fyrir færslu á lögnum út fyrir væntanlegt hringtorg við Lónsveg sbr. meðfylgjandi gögn.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsóknin sé samþykkt og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi innan sveitarfélagsmarka Hörgársveitar fyrir færslu lagna út fyrir væntanlegt hringtorg við Lónsveg.

  1. Gáseyri – umsókn um framkvæmdaleyfi til sandtöku (2401001)

Tekin fyrir að nýju framkvæmdaleyfisumsókn Gáseyrarinnar ehf. vegna efnistöku að Gáseyri (L152495) við ósa Hörgár. Sótt er um leyfi til að taka allt að 50.000 m3 af sandi á 2,5 ha svæði á 3 árum úr sandnámu á staðnum.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði veitt heimild fyrir nýrri efnistöku fyrr en skýrsla um úttekt á efnistöku í Hörgársveit í tengslum við endurskoðun aðalskipulags liggur fyrir.

  1. Hraun í Öxnadal L152440 – nýtt deiliskipulag (2410010)

Hraun í Öxnadal ehf. sækir um heimild til að vinna deiliskipulag fyrir jörðina Hraun (L152440) samkvæmt meðfylgjandi skipulagslýsingu unna af Landslagi, dags. 18.10.2024 auk fylgigagna.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að Hrauni í Öxnadal ehf. verði heimilað að vinna deiliskipulag fyrir jörðina Hraun og að skipulagslýsingunni verði vísað í kynningarferli samkvæmt 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

  1. Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045 – umsagnarbeiðni (2410008)

Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar um skipulagslýsingu vegna endurskoðunar Aðalskipulags Dalvíkurbyggðar 2025-2045. Skipulagslýsing unnin af Yrki arkitektum, dags. 06.09.2024 fylgir erindinu.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við skipulagslýsinguna.

  1. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030 endurskoðun – umsagnarbeiðni (2411005)

Akureyrarbær óskar umsagnar Hörgársveitar vegna endurskoðunar á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 og fylgir skipulagslýsing dags. 23.10.2024 erindinu. Umsagnarfrestur er til 04.12.2024.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að bent verði á að ekki sé heppilegt að ráðgerð sé stækkun á atvinnusvæði (AT8) á kostnað íbúðarsvæðis sem liggur við sveitarfélagamörk Hörgársveitar. Eins verði horft til þess að gert verði ráð fyrir íbúðarsvæði meðfram strandlengjunni við Krossanes í átt að sveitarfélaga-mörkum Hörgársveitar. Ekki verði gerð athugasemd við skipulagslýsinguna að öðru leyti.

  1. Hjalteyrarvegur 13 L238070 – beiðni um breyttan byggingarreit (2411001)

Byggingarfulltrúa hefur borist byggingarleyfisumsókn vegna byggingar gistihúss á Hjalteyrarvegi 13 (L238070) en byggingin fer út fyrir skilgreindan byggingarreit á deiliskipulagi auk þess sem byggingarmagn er meira en skv. deiliskipulagi.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði frestað og að byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjendur miðað við umræður á fundinum.

  1. Þrastarhóll 2, beiðni um afmörkun lóðar.

Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir afmörkun lóðar úr landi Þrastarhóls 2.

Afgreiðslu frestað og óskað eftir skýrari gögnum þar á meðal merkjalýsingu.

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 11:40