Stjórn Íþróttamiðstöðvar á Þelamörk, fundur nr. 1 - 2008
05.02.2008 14:50
Þriðjudaginn 5. febrúar 2008 kom stjórn Íþróttamiðstöðvarinnar saman til fundar í skrifstofu Hörgárbyggðar. Mættir voru: Axel Grettisson, Helgi Steinsson, Lárus Orri Sigurðsson og Guðmundur Sigvaldason, sem ritaði fundargerð.
Fundurinn hófst kl. 14:50.
Fyrir var tekið:
1. Endurbætur sundlaugarkerfa
Lögð fram frumhönnun og kostnaðaráætlun fyrirhugaðra endurbóta á lagnakerfi sundlaugar o.fl., sbr. ákvarðanir funda stjórnar Íþróttamiðstöðvarinnar 26. apríl og 15. nóvember 2007.
Að loknum umræðum var samþykkt vísa ákvörðun um framhald undirbúnings fyrir endurbæturnar og annað fyrirkomulag á þeim til sameiginlegs fundar sveitarstjórnanna sem verður þann 6. febr.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:35