Þorrablót sameinuð
07.10.2011
Fimmtudaginn 6. oktober komu saman til fundar þorrablótsnefndirnar þrjár sem skipaðar voru á síðustu þorrablótum sem haldin voru í Hörgársveit. Tilgangur fundarins var að ræða og taka ákvörðun um skipulag þorrablóta í sveitarfélaginu.
Niðurstaðan var sú að áfram verði haldið þorrablót Hörgdæla á Melum, en þorrablót Arnarneshrepps og þorrablót Hörgársveitar verði sameinað í eitt þorrablót og haldið í Hlíðarbæ. Munu nefndir þeirra blóta starfa saman sem ein nefnd við undirbúning á sameiginlegu þorrablóti fyrir Hörgársveit.