Sundlaugin heimsfræg?
20.02.2009
Forsíðu nýjasta hefti atlantica, sem er flugtímarit Icelandair, prýðir mynd af sundlauginni á Þelamörk. Þar með má ætla að allir sem koma til landsins með flugvélum flugfélagsins núna á útmánuðum virði fyrir sér myndina af þessu fallega mannvirki og því glæsilega umhverfi sem það er í. Sama mynd er líka inni í blaðinu, ásamt myndum af nokkrum öðrum íslenskum sundlaugum. Þeim fylgir stuttur pistill eftir ljósmyndarann, Pál Stefánsson, sem segir það besta við Ísland sé möguleikinn á að geta stungið sér í heita sundlaug í vetrarmyrkri og -kulda.
Aðsóknin að sundlauginni á Þelamörk síðan hún var opnað eftir endurbætur um miðjan desember sl. hefur aukist mjög mikið.