Starf hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar

Starf hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar

Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar auglýsir eftir aðila í afleysingu til eins árs í 50 % stöðu starfsmanns á skrifstofu. Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar er byggðasamlag sem annast skipulags- og byggingarmál í Grýtubakkahreppi, Svalbarðsstrandarhreppi, Eyjafjarðarsveit og Hörgársveit og mun nýr starfsmaður annast verkefni á skrifstofu byggðasamlagsins. Starfið felst í móttöku erinda og símavörslu og fer fram á skrifstofu embættisins, Skólatröð 9 í Hrafnagilshverfi.

Meðal verkefna starfsmannsins verða:

· Móttaka erinda og símavarsla

· Skráning upplýsinga í skjalakerfi embættisins

· Innra eftirlit skv. gæðakerfi embættisins

· Skönnun teikninga

· Almenn skrifstofustörf

· Samskipti við málsaðila vegna skipulagsmála s.s. grenndarkynninga

Hæfni- og menntunarkröfur

· Góð tölvukunnátta

· Góð íslenskukunnátta

· Stundvísi og skipulögð vinnubrögð

· Reynsla af skrifstofustörfum

· Lipurð í samskiptum

· Þekking á tölvuforritunum Outlook, Word og öðrum algengum hugbúnaði er kostur

Byggðasamlagið Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar bs. var stofnað árið 2017 og annast það skipulags- og byggingarmál í aðildarsveitarfélögum skv. skipulagslögum nr. 123/2010 og mannvirkjalögum nr. 160/2012. Starfstöð byggðasamlagsins er í Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi.

Umsóknarbréf og ferilskrá í pdf sniði skulu send í tölvupósti í síðasta lagi 13. nóvember 2024 á netfangið sbe@sbe.is. Kostur er ef nýr starfsmaður getur hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir skipulags- og byggingarfulltrúi, í síma 463-0621.

síma 463-0621.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar – Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri – s: 463-0621