Ný afgreiðslukerfi í íþróttamiðstöðinni tekið í notkun 28. október
Núna á mánudaginn, 28. október, verður skipt um afgreiðslukerfi í íþróttamiðstöðinni á Þelamörk í Hörgársveit. Hefur þessi breyting ekki áhrif á reglulega notendur miðstöðvarinnar að öðru leyti en það að nú verða öll kort í veski í símanum.
Aðrir gestir íþróttamiðstöðvarinnar geta einnig afgreitt sig sjálfir á rafrænan hátt, hvort sem er í stakt skipti eða fleiri. Til þess að kaupa kort í símann er farið á jonasarlaug.is, tegund korts sem á að kaupa er valið og greitt fyrir með greiðslukorti. Í rafrænt veski símans bætist þá við rafrænt aðgangskort sem notandi ber upp að skanna til þess að fá aðgang að sundlauginni. Kortin eru gefin út á tiltekinn einstakling og eiga einungis að vera notuð af þeim einstaklingi. Einnig er hægt að kaupa stakan miða, sem er eitthvað sem hentar til dæmis fyrir ferðafólk sem getur þá keypt sína miða fyrirfram og þurfa ekki að staldra við í afgreiðslunni eða bíða í röð.
Þau sem eiga nú þegar kort af einhverju tagi, geta nú þegar farið inn á vefsíðuna jonasarlaug.is, skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og sótt sitt kort í símann.
Leiðbeiningar:
- Farðu inn á jonasarlaug.is.
- Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
- Smelltu á nafnið þitt í valmyndinni (uppi til hægri) og veldu svo Kortin mín.
- Finndu kortið og veldu Sækja kort í síma.
- Þá er hægt að setja kortið upp í veskinu í símanum og skanna.
Athugið að fólk verður að vera með Veski/Wallet uppsett í sínum sínum, en það er sama forrit og við notum til að geyma til dæmis ökuskírteinið okkar, ýmsa miða og kort.
Kerfið er nýtt fyrir bæði notendur og starfsfólk miðstöðvarinnar og því viðbúið að alls konar vandræði geti komið upp á meðan við erum öll að læra en starfsfólk okkar leggur sig fram við að aðstoða öll sem óska.