Kjörskrá
17.05.2018
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í Hörgársveit 26. maí 2018 mun liggja frammi á skrifstofu Hörgársveitar í Þelamerkurskóla á skrifstofutíma frá og með miðvikudeginum 16. maí 2018 til kjördags.
Athygli er vakin á því að kjósendur geta nú kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá.
Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær sveitarstjórn.
Sveitarstjórinn í Hörgársveit