Hörgársveit hlýtur jafnlaunavottun
15.01.2021
Hörgársveit hefur hlotið jafnlaunavottun sem er staðfesting á því að jafnlaunakerfi sveitarfélagsins samræmist kröfum jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Með innleiðingu jafnlaunastaðals hefur sveitarfélagið komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvarðanir í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun. Jafnlaunavottun er stöðugt umbótaferli hjá sveitarfélaginu.