Fundargerð - 30. júní 2010
Miðvikudaginn 30. júní 2010 kl. 20:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar í Leikhúsinu Möðruvöllum.
Fundarmenn: Axel Grettisson, Hanna Rósa Sveinsdóttir, Helgi Þór Helgason, Helgi Bjarni Steinsson, Sunna Hlín Jóhannesdóttir.
Fundarritari: Guðmundur Sigvaldason.
Þetta gerðist:
1. Ráðningarsamningur sveitarstjóra
Lagður fram ráðningarsamingur við Guðmund Sigvaldason vegna starfs sveitarstjóra, sbr. 8. lið fundargerðar fundar sveitarstjórnar 18. júní 2010.
Sveitarstjórn samþykkti ráðningarsamninginn.
Sveitarstjóri óskaði að eftirfarandi verði bókað:
Ég þakka það mikla traust sem mér er sýnt með því að ráða mig sem sveitarstjóra Hörgársveitar á nýju kjörtímabili. Um leið vil ég hvetja til þess að stefnt verði markvisst að Green Globe vottun, eða annarri sambærilegri vottun, fyrir sveitarfélagið á kjörtímabilinu, með vísan til þess að í aðdraganda kosninganna lögðu bæði framboðin til sveitarstjórnar áherslu á vinnu að umhverfismálum í anda Staðardagskrár 21. Ég persónulega er reiðubúinn að stuðla eftir megni að því að þetta takist, m.a. með því afsala mér tveggja mánaða launum, takist að ná slíkri vottun fyrir 1. júní 2013.
2. Laun sveitarstjórnarfulltrúa
Samþykkt að laun sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarfólks hjá Hörgársveit á kjörtímabilinu verði sem hér segir:
Oddviti: 10% af þingfararkaupi á mánuði og 3% af þingfararkaupi fyrir setinn fund
Aðrir fulltrúar í sveitarstjórn: 5% af þingfararkaupi á mánuði og 2% af þingfararkaupi fyrir setinn fund
Varamenn í sveitarstjórn: 2% af þingfararkaupi fyrir setinn fund
Formaður nefndar: 3% af þingfararkaupi fyrir setinn fund
Aðrir nefndarmenn:2% af þingfararkaupi fyrir setinn fund
Kjörnir skoðunarmenn:4% af þingfararkaupi hvor
Fulltrúi á aðalfundi Eyþings: 4% af þingfararkaupi
Greiðslur fyrir akstur verði skv. akstursdagbók.
3. Skipan í nefndir
Sveitarstjórn kaus eftirtalda í nefndir sveitarfélagsins:
Fræðslunefnd
aðalmenn: varamenn:
Axel Grettisson, formaður Anna Berglind Pálmadóttir
Stefanía G. Steinsdóttir Einar Kristinn Brynjólfsson
Garðar Lárusson Jón Þór Benediktsson
Líney Diðriksdóttir
Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Skipulags- og umhverfisnefnd
aðalmenn: varamenn:
Hanna Rósa Sveinsdóttir, formaður Helgi Þór Helgason
Jón Þór Benediktsson
Anna Dóra Gunnarsdóttir Stefán Magnússon
Birna Jóhannesdóttir
Róbert Fanndal
Fjallskilanefnd
aðalmenn: varamenn:
Guðmundur T. Skúlason, formaður Sigríður Kristín Sverrisdóttir
Helgi Bjarni Steinsson Davíð Jónsson
Jósavin Gunnarsson
Stefán Lárus Karlsson
Félagsmála- og jafnréttisnefnd
aðalmenn: varamenn:
Elisabeth J. Zitterbart, formaður Unnar Eiríksson
Sunna Hlín Jóhannesdóttir Ingibjörg Arnsteinsdóttir
Bragi Konráðsson Pálína Jóhannesdóttir
Jóhanna María Oddsdóttir
Sigmar Bragason
Menningarmála- og tómstundanefnd
aðalmenn: varamenn:
Árni Arnsteinsson, formaður Solveig Lára Guðmundsdóttir
Bernharð Arnarson Jónína Garðarsdóttir
Halldóra Vébjörnsdóttir Jósavin Arason
Gústav G. Bollason
Hanna Rósa Sveinsdóttir
Atvinnumálanefnd
aðalmenn: varamenn:
Guðmundur Sturluson, formaður Jón Þór Brynjarsson
Helgi Þór Helgason Lene Zachariassen
Inga Björk Svavarsdóttir Bryndís Óskarsdóttir
Þórður Ragnar Þórðarson
Aðalheiður Eysteinsdóttir
Fulltrúi á landsþing Sambands ísl. sveitarfélaga
aðalmaður: varamaður:
Hanna Rósa Sveinsdóttir Axel Grettisson
Fulltrúar á aðalfund Eyþings
aðalmenn: varamenn:
Guðmundur Sigvaldason Axel Grettisson
Hanna Rósa Sveinsdóttir Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Fulltrúi á haustfund Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
aðalmaður: varamaður:
Hanna Rósa Sveinsdóttir Axel Grettisson
Fulltrúi í stjórn Hafnasamlags Norðurlands
aðalmaður: varamaður:
Guðmundur Sigvaldason Hanna Rósa Sveinsdóttir
Fulltrúi í skólanefnd Tónlistarskóla Eyjafjarðar
aðalmaður: varamaður:
Axel Grettisson Hanna Rósa Sveinsdóttir
Kjörstjórn
aðalmenn: varamenn:
Þórhildur Sigurbjörnsdóttir Bryndís Olgeirsdóttir
Herborg Sigfúsdóttir Sverrir Haraldsson
Skoðunarmenn:
aðalmenn: varamenn:
Eva María Ólafsdóttir Ásbjörn Valgeirsson
Vignir Sigurðsson Þorlákur Aðalsteinsson
Í bygginganefnd Eyjafjarðarsvæðis
aðalmaður: varamaður:
Egill Bjarnason Klængur Stefánsson
Í stjórn búfjáreftirlits á svæði 18
aðalmaður: varamaður:
Helgi Bjarni Steinsson Árni Arnsteinsson
Aðalmaður/varamaður í stjórn Minjasafnsins
Árni Arnsteinsson
Við skipan í nefndirnar var jafnrétti kynjanna haft í huga og að í fastanefndum sitji a.m.k. einn sveitarstjórnarfulltrúi.
4. Kennitala sveitarfélagsins
Samþykkt var að kennitala Hörgársveitar verði 510101-3830.
5. Byggðarmerki
Samþykkt var að taka upp byggðarmerki Hörgárbyggðar sem byggðarmerki Hörgársveitar.
6. Heimasíða sveitarfélagsins
Samþykkt var að hafinn verði undirbúningur að gerð heimasíðu fyrir sveitarfélagið.
7. Fundargerð heilbrigðisnefndar, 17. maí 2010
Fundargerðin er í sextán liðum. Liður 15e varðar Hörgársveit, hann er um útleigu á íbúð að Litla-Dunhaga I.
Sveitarstjórn samþykkti afgreiðslu nefndarinnar á lið 15e í fundargerðinni. Aðrir liðir hennar gefa ekki tilefni til ályktunar af hálfu sveitarstjórnarinnar.
8. Fundargerð samvinnunefndar um svæðisskipulag, 20. maí 2010
Fundargerðin er í fjórum liðum.
Fundargerðin gefur ekki tilefni til ályktunar.
Lagt fram bréf, dags. 13. júní 2010, frá formanni samvinnunefndarinnar, þar sem óskað er eftir tilkynningu um fulltrúa sveitarfélagsins í nefndinni.
Með vísan til framangreinds bréfs voru Guðmundur Sigvaldason og Hanna Rósa Sveinsdóttir kosin sem fulltrúar Hörgársveitar í samvinnunefndinni. Axel Grettisson og Birna Jóhannesdóttir voru kosin til vara.
9. Fundargerð framkvæmdastjórnar byggingarfulltrúaembættisins, 2. júní 2010
Fundargerðin er í þremur liðum.
Fyrsti og þriðji liður gefa ekki tilefni til ályktunar.
Annar liður er um endurskoðun á samningi aðildarsveitarfélaganna um rekstur byggingarfulltrúaembættisins. Með vísan til hans var lagður fram á fundinum endurskoðaður samningur. Sveitarstjórn samþykkti að veita sveitarstjóra umboð til að undirrita samninginn fyrir sitt leyti.
10. Fundargerð bygginganefndar, 8. júní 2010
Fundargerðin er í 21 lið. Liðir 20 og 21 varða Hörgársveit. Sá fyrri varðar stöðuleyfi í 2 ár fyrir 3-4 íbúðargáma í Staðartungu. Sá síðar er um leyfi til að byggja reiðskemmu, viðbyggingu við bogaskemmu og hesthús í Litlu-Brekku.
Sveitarstjórn samþykkti afgreiðslu nefndarinnar á liðum 20 og 21 í fundargerðinni. Aðrir liðir hennar gefa ekki tilefni til ályktunar af hálfu sveitarstjórnarinnar.
11. Fundargerðir stjórnar Eyþings, 11. maí og 10. júní 2010
Fyrri fundargerðin er í fimm liðum og sú síðari í fjórum liðum.
Hvorug fundargerðanna gefa tilefni til ályktunar.
12. Vinnuskóli, laun
Lagt fram minnisblað um laun í vinnuskólum Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar 2009.
Samþykkt var að laun í vinnuskóla Hörgársveitar sumarið 2010 verði sem hér segir:
14 ára: 459 kr. á klst.
15 ára: 510 kr. á klst.
16 ára: 639 kr. á klst.
Orlof er innifalið.
13. Starfsemi SÁÁ
Tekið fyrir tölvubréf, dags. 19. apríl 2010, frá bæjarstjóranum á Akureyri, sem sveitarstjórn Hörgárbyggðar frestaði afgreiðslu á á fundi sínum 19. maí 2010. Þar er sett fram hugmynd um fjármögnun sem ætlað er að tryggja starfsemi SÁÁ á Akureyri út árið 2011.
Samþykkt var að veita kr. 70.000 til verkefnisins á árinu 2010 og kr. 100.000 á árinu 2011. Sveitarstjórnin lítur svo á að um tímabundið framlag að ræða, þar sem viðkomandi rekstur er á ábyrgð ríksins.
14. Flokkun Eyjafjörður ehf., staða og framtíð
Lagt fram minnisblað, dags. 25. maí 2010, um stöðu og framtíð Flokkunar Eyjafjörður ehf., fyrst og fremst í ljósi þess að rekstri urðunarstaðarins á Glerárdal lýkur innan tíðar.
Til kynningar.
15. Tónlistarskóli Eyjafjarðar, innritun haustannar 2010
Lagðar fram tvær útgáfur af áætlun um launakostnað á haustönn 2010 í Tónlistarskóla Eyjafjarðar, annars vegar án umsókna frá fullorðnum og hins vegar þar sem þær eru teknar með. Þá var lögð fram ársskýrsla Tónlistarskólans fyrir skólaárið 2009-2010.
Samþykkt var að hafna umsóknum fullorðinna um námsvist í Tónlistarskólanum.
16. Styrkbeiðni vegna sumardvalar
Tölvubréf, dags. 1. júní 2010, þar sem óskað er eftir styrk vegna dvalar barns í sumarbúðum í sumar.
Samþykkt var að hafna erindinu og jafnframt var menningar- og tómstundanefnd falið að móta reglur um stuðning sveitarfélagsins við tómstundastarf.
17. Skógrækt á Ósi
Bréf, dags. 4. júní 2010, frá Jóhannesi Hermannssyni og Brynjari Ragnarssyni með eindregnum tilmælum um að framhaldið verði trjáplöntun á Ósi, sem þar hófst árið 2002.
Samþykkt var að vísa efni bréfsins til skipulags- og umhverfisnefndar.
18. Hjalteyri, lagning háspennujarðstrengs
Bréf, dags. 14. júní 2010, frá RARIK þar sem óskað er eftir leyfi landeiganda fyrir lagningu jarðstrengs frá dælustöð hitaveitu að jarðspennistöð á Hjalteyri.
Samþykkt var að veita umbeðið leyfi.
19. Bitrugerði, umsögn um leyfi fyrir litboltavöll
Bréf, dags. 22. júní 2010, frá Sýslumanninu á Akureyri, þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn um leyfi fyrir litboltavelli í landi Bitrugerðis.
Samþykkt var að leggjast ekki gegn því að umbeðið leyfi verði veitt.
20. Íþróttavöllurinn Lónsbakka, beiðni um afnot
Tölvubréf, dags. 24. júní 2010, frá Garðari Þorsteinssyni o.fl. þar sem óskað er eftir leyfi fyrir afnotum af íþróttavellinum á Lónsbakka fyrir knattspyrnuiðkun.
Samþykkt var að fela sveitarstjóra að gera samning við bréfritara um umbeðin afnot. Efni samningsins verði í samræmi við umræður á fundinum.
21. Eyrarbakki, Hjalteyri, rotþró
Tölvubréf, dags. 24. júní 2010, frá Guðrúnu Helgu Stefánsdóttur o.fl., þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið taki þátt í kostnaði við nýja rotþró við Eyrarbakka á Hjalteyri.
Samþykkt var að orðið verði við erindinu á sama hátt og tíðkast hefur í Arnarneshreppi og jafnframt að skipulags- og umhverfisnefnd verði falið að móta samræmdar reglur og gjaldskrá um rotþróarmál í sveitarfélaginu.
22. Álfasteinn, starfsmannamál
Bréf, dags. 25. júní 2010, frá leikskólastjóra og deildarstjóra á Álfasteini um starfsmannamál.
Samþykkt var að vísa erindinu til fræðslunefndar.
23. Björg, skipting lands
Lögð fram skiptayfirlýsing, dags. 28. júní 2010, um stofnun landspildu úr jörðinni Björgum fyrir íbúðarhúsið að Björgum II.
Sveitarstjórn samþykkti skiptayfirlýsinguna fyrir sitt leyti.
24. Fundargerð búfjáreftirlitsnefndar á svæði 18, 7. júní 2010
Fundarerðin er í þremur liðum.
Fundargerðin gefur ekki tilefni til ályktunar.