Fundargerð - 28. nóvember 2012
Miðvikudaginn 28. nóvember 2012 kl. 16:00 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn:
Þetta gerðist:
1. Aðalskipulag Hörgársveitar 2012-2024, umræða
Farið yfir drög að sveitarfélagsuppdætti, þéttbýlisuppdráttum, greinargerð, forsendum og umhverfisskýrslu aðalskipulags Hörgársveitar 2012-2024, dagsett 28. nóvember 2012. Gerðar voru tillögur að breytingum á uppdráttum og greinargerðum aðalskipulagsdraganna. Fram kom að frekari athugunar er þörf á málsmeðferð hvað varðar efnistöku og flutningsleiðir raforku, þar sem ný sjónarmið hafa komið fram á síðustu vikum.
Skipulags- og umhverfisnefnd fól skipulagsráðgjafa að vinna úr þeim tillögum sem fram komu á fundinum.
Fleira gerðist ekki fundi slitið kl. 18:55.