Fundargerð - 18. júní 2014
Miðvikudaginn 18. júní 2014 kl. 20:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Niðurstaða kosninga til sveitarstjórnar í Hörgársveit þann 31. maí 2014 urðu þau að J-listi Grósku fékk 139 atkvæði og þrjá menn kjörna, L-listi Lýðræðislistans fékk 80 atkvæði og einn mann kjörinn og N-listi Nýrra tíma 78 atkvæði og einn mann kjörinn. Skv. því voru eftirtaldir kosnir i sveitarstjórnina: Axel Grettisson, Ásrún Árnadóttir, Helgi Bjarni Steinsson, Jóhanna María Oddsdóttir og Jón Þór Bendiktsson.
Fundarmenn voru allir nýkjörnir fulltrúar í sveitarstjórninni.
Fundarritari: Guðmundur Sigvaldason.
Helgi Bjarni Steinsson setti fundinn og stjórnaði honum uns oddviti hafði verði kosinn.
Þetta gerðist:
1. Kosning oddvita
Við kosningu oddvita hlaut Axel Grettisson 5 atkvæði. Samkvæmt því var Axel Grettisson lýstur réttkjörinn oddviti til loka kjörtímabilsins.
Nýkjörinn oddviti, Axel Grettisson, tók nú við stjórn fundarins.
2. Kosning varaoddvita
Við kosningu varaoddvita hlaut Jóhanna María Oddsdóttir 3 atkvæði, Helgi Steinsson 1 atkvæði og Jón Þór Benediktsson 1 atkvæði. Samkvæmt því var Jóhanna María Oddsdóttir lýst réttkjörin varaoddviti til loka kjörtímabilsins.
3. Ráðning sveitarstjóra
Sveitarstjórn samþykkti að Guðmundur Sigvaldason verði ráðinn sveitarstjóri og fól oddvita og varaoddvita að gera við hann ráðningarsamning út kjörtímabilið, sem lagður verði fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.
4. Kosning í fastanefndir
Sveitarstjórn kaus eftirtalda í fastanefndir sveitarfélagsins:
Fræðslunefnd
aðalmenn: varamenn:
Axel Grettisson, formaður Garðar Lárusson
María Albína Tryggvadóttir Jóhanna María Oddsdóttir
Ásrún Árnadóttir Ingibjörg Stella Bjarnadóttir
Skipulags- og umhverfisnefnd
aðalmenn: varamenn:
Jón Þór Benediktsson, formaður Helgi Þór Helgason
Róbert Fanndal Stefán Magnússon
Jóhanna María Oddsdóttir Sigríður Guðmundsdóttir
Fjallskilanefnd, með fyrirvara um staðfestingu ráðuneytis á breytingu á samþykkt um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar, sbr. 5. lið í þessari fundargerð
aðalmenn: varamenn:
Aðalsteinn H. Hreinsson, formaður Stefán Lárus Karlsson
Jónas Þór Jónasson Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir
Sigríður Kr. Sverrisdóttir Davíð Jónsson
Félagsmála- og jafnréttisnefnd
aðalmenn: varamenn:
Bragi Konráðsson, formaður Sigmar Bragason
Ingibjörg Stella Bjarnadóttir Ingibjörg Arnsteinsdóttir
Andrea R. Keel Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Atvinnu- og menningarmálanefnd,með fyrirvara um staðfestingu ráðuneytis á breytingu á samþykkt um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar, sbr. 5. lið í þessari fundargerð
aðalmenn: varamenn:
Jóhanna María Oddsdóttir, formaður Jón Þór Bendiktsson
Bernharð Arnarson Gústav Geir Bollason
Sigríður Guðmundsdóttir María Albína Tryggvadóttir
Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir Helgi Þór Helgason
Þórður R Þórðarson Jónas Ragnarsson
Atvinnumálanefnd
Með fyrirvara um staðfestingu ráðuneytis á breytingu á samþykkt um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar, sbr. 5. lið í þessari fundargerð, fór ekki fram kosning í nefndina
Kjörstjórn
aðalmenn: varamenn:
Helgi B. Steinsson, formaður Stefán Magnússon
Jónína B. Grétarsdóttir Bryndís Olgeirsdóttir
Viðar Þorsteinsson Jónína Garðarsdóttir
Í stjórn Hafnasamlags Norðurlands
aðalmaður: varamaður:
Axel Grettisson Jón Þór Benediktsson
Í bygginganefnd Eyjafjarðarsvæðis
aðalmaður: varamaður:
Egill Bjarnason Klængur Stefánsson
Í svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar:
aðalmenn: varamenn:
Guðmundur Sigvaldason Axel Grettisson
Jón Þór Benediktsson Jóhanna María Oddsdóttir
Í skólanefnd Tónlistarskóla Eyjafjarðar
aðalmaður: varamaður:
Sigríður Guðmundsdóttir María Albína Tryggvadóttir
Í þjónusturáði vegna þjónustu við fatlað fólk
aðalmaður: varamaður:
Guðmundur Sigvaldason Axel Grettisson
Í stjórn Minjasafnsins á Akureyri (aðalmaður/varamaður)
Bernharð Arnarson
Fulltrúi á landsþing Sambands ísl. sveitarfélaga
aðalmaður: varamaður:
Axel Grettisson Jóhanna María Oddsdóttir
Fulltrúar á aðalfund Eyþings
aðalmenn: varamenn:
Guðmundur Sigvaldason Axel Grettisson
Jón Þór Benediktsson Ásrún Árnadóttir
Fulltrúi á haustfund Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
aðalmaður: varamaður:
Axel Grettisson Jóhanna María Oddsdóttir
5. Breyting á samþykkt um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar, fyrri umræða
Sveitarstjórn samþykkti að gerðar verði eftirfarandi breytingar á 40. gr. gildandi samþykktar um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar:
· 5. töluliður A.-liðar orðist svo: Fjallskilanefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. 2. gr. laga um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986. Fjallskilanefnd hefur heimild til fullnaðarákvarðana um skipulag fjallskila í sveitarfélaginu, þ.m.t. að jafna niður gangnadagsverkum, sbr. 29. gr. þessarar samþykktar.
· 6. töluliður A.-liðar falli niður.
· 7. töluliður A.-liðar orðist svo: Atvinnu- og menningarmálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
· Í B.-lið bætist við töluliður, sem verði númer 7 (númer annarra breytast til samræmis) svohljóðandi: Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar. Tveir aðalmenn og tveir varamenn skv. 2. gr. starfsreglna fyrir svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar nr. 501/2014.
· Í C.-lið bætist við 13. töluliður: Menningarráð Eyþings
Sveitarstjórnin samþykkti að 1. mgr. 8. gr. samþykktarinnar verði breytt þannig að reglulegir fundir sveitarstjórnar verði þriðja fimmtudag í mánuði, kl. 15:00, nema í júlímánuði.
6. Laun sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna
Sveitarstjórn samþykkti að laun sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna á kjörtímabilinu verði sem hér segir:
Oddviti: 15% af þingfararkaupi á mánuði og 3% af þingfararkaupi fyrir setinn fund
Aðrir fulltrúar í sveitarstjórn: 5% af þingfararkaupi á mánuði og 2% af þingfararkaupi fyrir setinn fund
Varamenn í sveitarstjórn: 2% af þingfararkaupi fyrir setinn fund
Formaður nefndar: 3% af þingfararkaupi fyrir setinn fund
Aðrir nefndarmenn:2% af þingfararkaupi fyrir setinn fund
7. Innanríkisráðuneytið, álit á framkvæmd útboðs á skólaakstri
Lagt fram til kynningar bréf, dags. 26. maí 2014, frá Prima lögmönnum þar sem fyrir hönd FAB Travel ehf. er boðin sátt um framkvæmd skólaaksturs 2013-2014.
8. Verbúðalóðir á Hjalteyri, úthlutun
Rætt um fyrirkomulag við úthlutun þeirra verbúðalóða, sem fyrirliggjandi tillaga að breyttu deiliskipulagi á Hjalteyri gerir ráð fyrir. Um er að ræða níu verbúðir í þremur húsum.
Sveitarstjórn samþykkti að nýjar verbúðalóðir á Hjalteyri verði auglýstar lausar til umsóknar með umsóknarfresti til 10. ágúst 2014. Ennfremur samþykkti sveitarstjórnin að gatnagerðargjald vegna hverrar verbúðar verði 350.000 kr.
9. Tónlistarskóli Eyjafjarðar, ársskýrsla
Lögð fram til kynningar árskýrsla Tónlistarskóla Eyjafjarðar 2013-2014, ásamt áætlun um launakostnað á haustönn 2014. Áætlunin fyrir Hörgársveit er 5.615 þús. kr. (4 mánuðir). Þá voru lagðar fram til kynningar fundargerðir skólanefndar Tónlistarskólans 14. apríl, 7. maí og 11. júní 2014.
10. Þrastarhóll, stöðuleyfi geymslugáms
Lagt fram afrit af umsókn til byggingarnefndar um stöðuleyfi fyrir geymslugám í landi Þrastarhóls.
Sveitarstjórn samþykkti að leggjast gegn því að fyrirliggjandi umsókn um stöðuleyfi geymslugáms í landi Þrastarhóls verði samþykkt og ennfremur að settar verði reglur um útfærslu ákvæða byggingareglugerðar um gáma og annað bráðabirgðahúsnæði.
Axel Grettisson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
11. Neðri-Vindheimar, landskipti
Lögð fram afstöðumynd sem sýnir afmörkun á 30 ha landspildu sem fyrirhugað er að taka undan jörðinni Neðri-Vindheimum. Óskað er eftir umsögn um landskiptin, sbr. 13. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Sveitarstjórn samþykkti fyrir sitt leyti þau landskipti að Neðri-Vindheimum sem lýst er í framlögðum gögnum.
12. Skriðuland, landskipti
Lögð fram fram afstöðumynd sem sýnir afmörkun á landspildu, sem er 10.545 m2, sem fyrirhugað er að taka undan jörðinni Skriðulandi. Óskað er eftir umsögn um landskiptin sbr. 13. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Sveitarstjórn samþykkti að fyrir sitt leyti þau landskipti að Skriðulandi sem lýst er í framlögðum gögnum.
13. Molta ehf., aðalfundarboð
Lagt fram aðalfundarboð Moltu ehf. Aðalfundurinn verður 30. júní 2014.
Sveitarstjórn samþykkti að Guðmundur Sigvaldason fari með umboð sveitarfélagsins á aðalfundi Moltu ehf. 30. júní 2014 og Jóhanna María Oddsdóttir til vara.
14. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar bs., aðalfundarboð
Lögð fram aðalfundarboð Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs. Aðalfundurinn verður 27. júní 2014.
Sveitarstjórn samþykkti að Guðmundur Sigvaldason fari með umboð sveitarfélagsins á aðalfundi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs. 27. júní 2014.
15. Tækifæri hf., skráning hlutabréfa
Lagt fram til kynningar bréf, dags. 26. maí 2014, frá Tækifæri hf. um skráningu hlutabréfa í félaginu.
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 22:40.