Fundargerð - 12. september 2011
Mánudaginn 12. september 2011 kl. 20:00 kom atvinnumálanefnd Hörgársveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn voru: Aðalheiður Eysteinsdóttir,
Þetta gerðist:
1. Málefni verksmiðjuhúseignanna á Hjalteyri
Rætt um málefni verksmiðjuhúseignanna á Hjalteyri í framhaldi af umræðum á síðustu fundum nefndarinnar.
Atvinnumálanefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að kannaðir verði vandlega möguleikar á stofnun einkahlutafélags um eignarhald og rekstur verksmiðjuhúseignanna á Hjalteyri. Nefndin telur mikilvægt að niðurstaða í málið fáist sem fyrst.
2. Styrkveitingar
Rætt um framkvæmd á auglýsingu og úthlutun á styrk/styrkjum til eflingar atvinnulífs í sveitarfélagsins.
Ákveðið var að samin verði drög að úthlutunarreglum fyrir úthlutun styrkja sem lögð verði fyrir næsta fund nefndarinnar.
3. Fjarskiptamál
Rætt um fjarskiptamál í sveitarfélaginu.
Ákveðið var að sendur verði út spurningalisti um sveitarfélagið um ástand á net- og símasambandi og móttökuskilyrðum útvarps og sjónvarps. Nefndin samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að Eyþingi verði falið að knýja á um nauðsynlegar úrbætur í þessum efnum.
Fleira gerðist ekki fundi slitið kl. 22:15.