Fundargerð - 12. maí 2011
Fimmtudaginn 12. maí 2011 kl. 16:30 kom fræðslunefnd Hörgársveitar saman til fundar í matsal Þelamerkurskóla.
Fundarmenn voru:
Axel Grettisson, Garðar Lárusson, Líney Diðriksdóttir, Stefanía Steinsdóttir og
Þetta gerðist:
Málefni Þelamerkurskóla:
1. Starfsáætlun 2011-2012, staðfesting
Lögð fram drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2011-2012, með skýringum, ásamt svonefndu kvótablaði.
Fræðslunefnd samþykkti að staðfesta framlögð gögn sem starfsáætlun Þelamerkurskóla fyrir skólaárið 2011-2012, sbr. 6. gr. laga um grunnskóla. Í henni felst að heildarfjöldi vikulegra kennslustunda á skólaárinu getur orðið allt að 275.
2. Breytingar á skólahúsnæði
Gerð var grein fyrir undirbúningi þess að bæta aðgengismál og brunavarnir skólahúsnæðisins. Fram kom að fyrirhugað er að ljúka undirbúningnum næsta vetur þannig að unnt verði að gera þær breytingar á húsnæðinu sem um er að ræða á árinu 2012.
Sameiginleg málefni:
3. Þóknun fyrir fundarsetu
Rætt sú hugmynd að verði ekki greidd þóknun fyrir setu á fundum fræðslunefndar.
4. Yfirlit yfir rekstur fræðslu- og uppeldismála janúar-mars 2011
Lagt fram yfirlit rekstur fræðslu- og uppeldismála fyrstu þrjá mánuði ársins 2011.
5. Jafnréttisáætlun, ósk um greinargerð
Félagsmála- og jafnréttisnefnd gerði á fundi sínum 3. maí 2011 eftirfarandi bókun: Félagsmála- og jafnréttisnefnd samþykkti að vekja athygli fræðslunefndar og menningar- og tómstundanefndar á jafnréttisáætlun sveitarfélagsins og að óska eftir að nefndirnar sjái til þess að skilað verði til félagsmála- og jafnréttisnefndar greinargerðum um hvernig þeim ákvæðum, sem varðar hvora nefnd, verður framfylgt. Greinargerðirnar berist í síðasta lagi 15. ágúst 2011.
Fræðslunefnd samþykkti að fela skólastjórum að gerafélagsmála- og jafnréttisnefnd grein fyrir fyrirhugaðri framfylgd á þeim ákvæðum í jafnréttisáætlun sveitarfélagsins, sem varða hvorn skóla fyrir sig.
6. Skólavistun
Gerð grein fyrir fyrirkomulagi skólavistunar sem undanfarin ár hefur verið í Álfasteini.
Fræðslunefnd samþykkti að skólavistun á Álfasteini verði auglýst sem vistunarúrræði fyrir grunnskólanemendur í 1.-4. bekk eftir daglegan skóladag.
Málefni Álfasteins:
7. Starfsáætlun 2011-2012, staðfesting
Lögð fram drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2011-2012 og yfirlit yfir væntanlegt starfsmannahald á skólaárinu. Fram kom að börnum muni væntanlega fækka nokkuð milli ára.
Fræðslunefnd samþykkti að staðfesta framlögð gögn sem starfsáætlun Álfasteins fyrir skólaárið 2011-2012, sbr. 14. gr. laga um leikskóla. Jafnframt er nefndin þeirrar skoðunar að starfsmannahald leikskólans þurfi að haldast í hendur við fjölda barna.
Þá samþykkti fræðslunefndin að vekja sérstaka athygli sveitarstjórnar á þeirri fækkun barna á grunnskóla- og leikskólaaldri milli skólaára sem virðist vera í sveitarfélaginu.
Fleira gerðist ekki fundi slitið kl. 19:00.