Fjölskylduferð á Þverbrekkuvatn
23.03.2011
Síðasta sunnudag var farin fjölskylduferð upp á Þverbrekkuvatn í Öxnadal. Alls fóru rúmlega 50 manns í ferðina og undu sér vel við dorgveiðar, leik á sleðum og ýmislegt fleira sér til skemmtunar í ótrúlega góðu veðri. Frábær dagur og góð tilbreyting fyrir bæði unga sem aldna. Myndin sýnir hópinn, smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Aflakóngur ferðarinnar, Jónsteinn Helgi
Eva Margrét, Egill Már
Máni
Sigrún og Erla Árnadætur í ægifagurri leikmynd