Atvinna - Heilsuleikskólinn Álfasteinn

Heilsuleikskólinn Álfasteinn í Hörgársveit óskar eftir að ráða starfsfólk í leikskóla. Um er að ræða 100 % tímabundna stöðu með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Mikilvægt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.

Leikskólinn er 4ja deilda skóli fyrir börn á aldrinum 1 til 6 ára.

Einkunnarorð skólans eru “Með sól í hjarta”

Mikil áhersla er lögð á gleði og vellíðan barna, næringu, hreyfingu, listsköpun og frjálsan leik. Einnig er unnið með jákvæðan aga (Positive Discipline) og er skólinn á Grænni grein.

Við leitum eftir fólki sem hefur gleði og ánægju af að starfa með börnum. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Vinnuumhverfi leikskólans er gott, nýtt húsnæði, góður starfsandi og áunnin stytting vinnuvikunnar er tekin í haustfríi, milli jóla og nýjárs og í dymbilviku, auk valkvæðra daga yfir árið. Allt starfsfólk Hörgársveitar fær árskort í Jónasarlaug á Þelamörk.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi í leikskóla eða með börnum æskileg
  • Jákvæðni, félagslyndi og góð færni í samskiptum
  • Sveigjanleiki og tilbúinn að ganga í ýmis störf
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð færni í íslensku
  • Almenn tölvukunnátta
  • Hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar um starfið má sjá á heimasíðu leikskólans https://alfasteinnhorgarsveit.is/

Umsóknarfrestur er til og með 15. október nk. og skal umsóknum skilað, ásamt ferilskrá á alfasteinn@horgarsveit.is

Upplýsingar gefur Hugrún Hermannsdóttir skólastjóri í síma 460-1760 eða á netfangið alfasteinn@horgarsveit.is