Aðalskipulagstillaga auglýst
14.07.2008
Tillaga að aðalskipulagi Hörgárbyggðar liggur nú frammi á skrifstofu sveitarfélagsins og auglýst hefur verið eftir hugsanlegum athugasemdum við hana. Ekki hefur verið í gildi neitt aðalskipulag fyrir Hörgárbyggð svo að um er að ræða merkan áfanga í skipulagsmálum sveitarfélagsins. Vinna við gerð aðalskipulagsins hófst haustið 2005 og hefur hún staðið með hléum síðan. Athugasemdafrestur við aðalskipulagið er til 8. september 2008 og vonast er til að lokaafgreiðsla þess geti orðið fyrir árslok.