Hlíðarbær

Hlíðarbær

 

Félagsheimilið Hlíðarbær er í eigu Reglu musterisriddara á Akureyri. Það er í Kræklingahlíð, um 5 km norðan Akureyrar. 

Aðstaða í húsinu er góð og hentar húsnæðið sérstaklega vel fyrir hvers kyns mannfagnaði og fundi. Í húsinu rúmast um 200 manns í sæti. 

Örstutt er í sundlaugina á Þelamörk.

Frá Hlíðarbæ er stutt í þekktar náttúruperlur og sögustaði, s.s. Gásir, Skipalón, Möðruvelli og Fagraskóg.

Upplýsingar gefur Ari Hallgrímsson umsjónarmaður á tölvupóstfanginu arihall@simnet.is.